Lýsing
4.300 kr.
Fermingarkerti:
Kertin eru 20 cm há og 6,8 cm í ummál.
Þú velur lit á kertið (bakgrunn). Þann texta sem þú vilt hafa á kertinu (nafn barns, dagsetning, ritningarorð) setur þú í textaboxið. Ef þú vilt ákveðið íþróttamerki eða eitthvað allt annað, þá er líka gott að skrifa það í textaboxið.
Mynd af fermingarbarninu er svo send sem viðhengi.
Ef þú ert með séróskir um hönnun, þá er best að hafa samband í gegnum tölvupóst – pantanir@kertiogkrus.is
Eftir að greiðsla hefur borist, þá sendi ég sýnishorn með tölvupósti, það gerist yfirleitt samdægurs.
Kertið er svo tilbúið 1-4 dögum eftir að kaupandi samþykkir sýnishornið.
Bakgrunnur á kerti: | Hvítur, Grár, Blár, Bleikur, Séróskir |
---|---|
Stærð: | 20 x 7 cm |